Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Ungnautafilet með fennikku og appelsínusósu
- Hráefni
- » 800 g ungnautafilet í 4 steikum
- » 3 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Fennikku- og appelsínusósa
- » 2 msk. matarolía
- » 2 stk. fennikkur
- » 4 msk. sykur
- » 3 dl rauðvín, óáfengt
- » 1 msk. appelsínumarmelaði
- » 1 tsk. nautakraftur (eða teningur)
- » 2 stk. appelsínur
- » 2 msk. sósujafnari
- » 2 msk. smjör
- » Meðlæti
- » 12-16 stk. litlar kartöflur
Fyrir 4
Aðferð
Steikið kjötið í heitri olíu í 6-7 mín. Bragðbætið með salti og pipar. Skiptið á diska. Berið fram með sósu og kartöflum.
Fennikku- og appelsínusósaSaxið fennikkurnar gróft, flysjið appelsínur og skerið í sneiðar.
Brúnið fennikkuna í olíu, stráið sykri yfir og brúnið. Bætið rauðvíni, krafti og marmelaði saman við, sjóðið í 2-3 mín. Þykkið með sósujafnara, sjóðið áfram í eina mínútu og bætið þá smjörinu á pönnuna ásamt appelsínusneiðunum. Sett yfir steikurnar.
MeðlætiBerið fram með soðnum kartöflum. Reiknið með 3-4 litlum kartöflum á mann.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/411/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










