Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Ungnautainnralæri með hvítlaukssveppum
- Hráefni
- » 800 g ungnautasteik úr innralæri
- » 1 dl ostrusojasósa
- » 3 msk. matarolía til steikingar
- » Hvítlaukssveppir
- » 400 g blandaðir sveppir, ferskir
- » 10 stk. hvítlauksrif
- » 3 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Hvítlaukssósa
- » 4-5 stk. hvítlauksrif
- » 3 stk. eggjarauður
- » 1 dl vatn
- » 100-150 g smjör, bráðið
- » 4 msk. steinselja, söxuð
- » 1 dl rjómi, þeyttur
- » salt og pipar
- » Meðlæti
- » 12-16 litlar kartöflur
Fyrir 4
Aðferð
Skerið kjötið í 1 cm þykkar sneiðar. Veltið upp úr ostrusojasósunni og látið standa í 1 klst. Steikið í heitri olíu í 3-4 mínútur, skiptið á diska.
HvítlaukssveppirSaxið hvítlaukinn. Steikið í heitri olíu ásamt blönduðum sveppum, bragðbætið með salti og pipar, leggið yfir steikurnar.
HvítlaukssósaSaxið eða pressið hvítlauksrifin. Pískið yfir hita ásamt eggjarauðum, vatni og steinselju þar til eggjarauðurnar fara að þykkna og verða froðukenndar. Bætið þá smjörinu saman við og þeyttum rjóma. Bragðbætið enn með salti og pipar ef vill. Hellið yfir kjötið og sveppina.
MeðlætiBerið fram með soðnum kartöflum. Reiknið með 3-4 litlum kartöflum á mann.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/412/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









