Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Entrecôte með rauðkáli og gráðaosti
- Hráefni
- » 800 g ungnauta-entrecôte (fjórar 200 g steikur)
- » 100 g gráðaostur (lítið stykki)
- » 3 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Rauðkál í rauðvínssósu
- » 1-2 msk. matarolía
- » 100 g beikonstrimlar
- » 200 g rauðkál, ferskt
- » 2 stk. rauðlaukur
- » 2 stk. lárviðarlauf
- » 1 tsk. timian
- » 4 dl rauðvín, óáfengt
- » 1 bréf rauðvínssósa (Knorr eða Toro)
- » Meðlæti
- » 4 stk. bökunarkartöflur
Fyrir 4
Aðferð
Steikið kjötið í 5-6 mínútur. Bragðbætið með salti og pipar. Skerið gráðaostinn í bita og leggið á steikurnar. Setjið undir ofngrillið og brúnið ostinn. Berið fram með rauðvínssoðnu rauðkáli og bökuðum kartöflum.
Rauðkál í rauðvínssósuSkerið rauðkál í strimla, saxið rauðlaukinn.
Snöggsteikið beikonstrimlana í heitri olíu, bætið grænmetinu út í og steikið í 3-4 mín. Bætið kryddi, rauðvíni og sósudufti saman við, sjóðið við vægan hita í 4-5 mínútur. Setjið á miðjan diskinn og leggið svo kjötið ofan á.
MeðlætiBakaðar kartöflur henta prýðilega með þessum rétti. Bakið þær í ofni við 180-200°C í 45-60 mínútur (eftir stærð).
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/414/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira








