Kjúklingabringa á beini með graslaukssósu

Hráefni
» 4 stk. kjúklingabringur með beini
» 3 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar
» Graslaukssósa
» 2 pottar/búnt graslaukur (50 g)
» 2 dósir sýrður rjómi, 18%
» 1 stk. kjúklingateningur (Knorr)
» Steiktar radísur
» 250 g radísur
» 10 msk. graskersfræ
» 3 msk. matarolía
» salt og pipar

Fyrir 4

Aðferð

Brúnið kjúklingabringurnar í heitri olíu, bragðbætið með salti og pipar. Setjið í 200°C heitan ofn í 30-35 mín. Leggið bringurnar ofan á graslaukssósuna og setjið steiktar radísur með graskersfræjum yfir.

Graslaukssósa

Allt sett í matvinnsluvélina og maukað. Skipt á diska.

Steiktar radísur

Skerið radísurnar í sneiðar, steikið síðan ásamt graskersfræjunum í heitri olíu í u.þ.b. mínútu, bragðbætið með salti og pipar.

Meðlæti

Gróft brauð hentar vel með kjúklingabringunum.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar