Kjúklingaleggir í hvítvínssósu

Hráefni
» 12 stk. kjúklingaleggir
» 3 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar
» Hvítvínssósa með grænmeti
» 1 stk. gulrófa (200 g)
» 2 stk. gulrætur, stórar
» 200 g sveppir
» 2 stk. laukur
» 2 dl kjúklingsoð (vatn og
» 1/2 Knorr-teningur)
» 2 dl hvítvín, óáfengt
» 1 peli rjómi
» 2-3 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
» 6 msk. steinselja, fersk
» 4 msk. matarolía til steikingar
» Meðlæti
» 12-16 stk. kartöflur

Fyrir 4

Aðferð

Brúnið kjúklingaleggina á pönnu, bragðbætið með salti og pipar. Setjið í 200°C heitan ofn í 20 mín. Berið fram með hvítvínssósu með grænmeti og soðnum kartöflum.

Hvítvínssósa með grænmeti

Skerið grænmetið niður, fremur smátt, og steikið í olíunni í 1-2 mín., brúnið ekki. Bætið kjúklingasoði og hvítvíni saman við, sjóðið í 2-3 mín. Rjómanum hellt yfir og suðunni hleypt upp, þykkt með sósujafnaranum. Soðið áfram við vægan hita í 2-3 mín. Blandið steinseljunni saman við rétt áður en meðlætið er borið fram.

Meðlæti

Soðnar kartöflur eiga vel við þennan rétt. Reiknið með 3-4 kartöflum á hvern fullorðinn.

Hollráð

Gott er að bæta 1/2 dl af þeyttum rjóma saman við sósuna áður en hún er borin fram.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar