Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Kjúklingaleggir með hunangs- og timiansósu
- Hráefni
- » 12 stk. kjúklingaleggir
- » 3 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Hunangs- og timiansósa
- » 1/2 stk. blaðlaukur (200 g)
- » 3 stk. gulrætur
- » 1/2 dl ostrusojasósa
- » 2 tsk. timian
- » 2 msk. Worcestershiresósa
- » 3 dl kjúklingasoð (vatn og
- » 1/2 Knorr-teningur)
- » 2 msk. hunang
- » 2 msk. smjör
Fyrir 4
Aðferð
Brúnið kjúklingaleggina á pönnu, bragðbætið með salti og pipar. Setjið í 200°C heitan ofn í 18-20 mín. Berið fram með hunangs- og timiansósu og grófu brauði.
Hunangs- og timiansósaSkerið blaðlaukinn í sneiðar og gulræturnar í fína strimla. Snöggsteikið á pönnu. Bætið öðrum efnum saman við á pönnunni og látið sjóða í 2-3 mínútur. Smjörinu bætt út í síðast. Setjið á diska og leggið kjúklingaleggina ofan á.
MeðlætiGjarnan má bera fram gróft brauð með þessum rétti.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/418/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










