Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Beikonvafðir kjúklingaleggir með súrsætri sósu
- Hráefni
- » 12 stk. kjúklingaleggir
- » 24 stk. beikonsneiðar
- » 12 stk. tannstönglar
- » 3-4 msk. matarolía
- » Súrsæt sósa
- » 2 stk. rauðlaukur
- » 4 stk. paprika, rauð og græn
- » 2 stk. hvítlaukur
- » 1 bakki baunaspírur
- » 2 glös (500 g) súrsæt sósa (La Choy)
- » 2 msk. matarolía
- » Meðlæti
- » 200-250 g hrísgrjón
Fyrir 4
Aðferð
Vefjið beikonsneiðunum um kjúklingaleggina, festið með tannstönglum og brúnið í heitri olíu á pönnu. Setjið í 200°C heitan ofn í 18-20 mín. Berið fram með súrsætri sósu og soðnum hrísgrjónum.
Súrsæt sósaSkerið grænmetið fremur smátt og léttbrúnið í heitri olíu. Bætið tilbúnu sósunni saman við og sjóðið í 1-2 mínútur.
MeðlætiSjóðið hrísgrjónin skv. leiðbeiningum á pakka.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/420/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










