Kjúklingaleggir með maíssósu

Hráefni
» 12 stk. kjúklingaleggir
» 3 msk. matarolía
» salt og pipar
» Maíssósa með papriku
» 1/2 dós maískorn (300 g)
» 1 bakki smámaís
» 1 stk. paprika, appelsínugul
» 2 stk. laukur
» 1 stk. kjúklingateningur (Knorr)
» 4 dl rjómi
» 1-2 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
» 2 msk. matarolía
» Meðlæti
» 200 g pasta

Fyrir 4

Aðferð

Brúnið kjúklingaleggina í heitri olíu, kryddið með salti og pipar. Stingið í 200°C heitan ofn í 18-20 mínútur. Leggið kjúklingaleggina síðan ofan á sósuna og berið fram með soðnu pasta.

Maíssósa með papriku

Skerið paprikuna og lauk í litla teninga. Snöggsteikið allt grænmeti í 1-2 mín. í heitri olíu. Bætið kjúklingakrafti og rjóma saman við, látið suðuna koma upp og þykkið með sósujafnaranum. Sjóðið áfram í eina mínútu.

Meðlæti

Sjóðið pasta skv. leiðbeiningum á pakka.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar