Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Kjúklingabringa með perum og plómum
- Hráefni
- » 4 stk. kjúklingabringur með beini
- » 3-4 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Peru- og plómusósa
- » 2 stk. perur, ferskar
- » 8-10 stk. plómur, ferskar
- » 1 stk. kúrbítur (zucchini)
- » 8 stk. einiber
- » 2 msk. sítrónusafi
- » 1-2 msk. hunang
- » 1 dl rauðvín, óáfengt
- » 3 msk. matarolía
Fyrir 4
Aðferð
Brúnið kjúklingabringurnar í heitri olíu, bragðbætið með salti og pipar og steikið áfram í 200°C heitum ofni í 30-35 mín. Berið fram með peru- og plómusósu og grófu brauði.
Peru- og plómusósaFlysjið perurnar og skerið í teninga, plómurnar í báta og kúrbítinn í teninga. Steikið í heitri olíu ásamt muldum einiberjum í eina mínútu. Bragðbætið með salti og pipar. Bætið rauðvíni, hunangi og sítrónusafa saman við og sjóðið áfram í 1-2 mín.
MeðlætiGróft brauð hentar vel með þessum gómsæta rétti.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/424/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










