Kjúklingastrimlar með rækjum

Hráefni
» 600-800 g kjúklingabringur, beinlausar
» 8-10 stk. vorlaukur
» 200 g sveppir
» 8 stk. sýrðar smágúrkur (gherkins)
» 4 dl rjómi
» 3 msk. tómatmauk (puré)
» 100-150 g rækjur
» 3-4 msk. matarolía
» salt og pipar
» Meðlæti
» 200-250 g hrísgrjón

Fyrir 4

Aðferð

Skerið bringurnar í strimla og snöggsteikið í heitri olíu. Bragðbætið með salti og pipar.

Skerið sveppi, vorlauk og smágúrkur í sneiðar og bætið á pönnuna, steikið áfram í 1-2 mín. Bætið þá rjóma og tómatmauki saman við og látið suðuna koma upp. Setjið rækjurnar saman við rétt áður en rétturinn er borinn fram. Bragðbætið með salti og pipar ef vill.

Meðlæti

Sjóðið hrísgrjón skv. leiðbeiningum á pakka. Einnig er gott að bera fram með þessu gróft brauð.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar