Kjúklingabringa með rauðvínssósu og sveppum

Hráefni
» 4 stk. kjúklingabringur, beinlausar
» 3 msk. matarolía
» salt og pipar
» Rauðvínssósa með sveppum
» 400 g sveppir
» 3 stk. laukur
» 1 tsk. oregano
» 1 tsk. timian
» 4 dl rauðvín, óáfengt
» 1 bréf rauðvínssósa, Knorr eða Toro
» 3 msk. matarolía
» Meðlæti
» 4 stk. bökunarkartöflur

Fyrir 4

Aðferð

Snöggsteikið kjúklingabringurnar í heitri olíunni, bragðbætið með salti og pipar. Setjið í eldfast form og steikið í ofni við 200°C í 20 mínútur. Takið úr ofninum, skerið hverja bringu í þrjá hluta og leggið ofan á sósuna þegar borið er fram.

Rauðvínssósa með sveppum

Sneiðið lauk og brúnið í heitri olíu, sneiðið sveppina og bætið á pönnuna. Bætið þá kryddi, rauðvíni og rauðvínssósudufti á pönnuna, hrærið vel saman og sjóðið í 2-3 mínútur. Setjið á diska og kjúklingabringurnar ofan á.

Meðlæti

Bakaðar kartöflur henta vel með þessum rétti. Bakið þær í 45-60 mínútur við 180-200°C (eftir stærð).

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar