Kjúklingabringur með spínatfyllingu
- Hráefni
- » 4 stk. kjúklingabringur, beinlausar
- » 3 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Spínatfylling
- » 100-150 g spínat
- » 1 stk. kjúklingabringa, hamflett
- » 1 stk. eggjahvíta
- » 1 dl rjómi
- » salt og pipar
- » Sósa og meðlæti
- » 200 g sveppir, litlir
- » 200 g spínat
- » 2 stk. laukar
- » 2 dl hvítvín, óáfengt
- » 1 peli rjómi
- » 1 stk. kjúklingateningur (Knorr)
- » 2 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
- » 3 msk. matarolía
Fyrir 4
Aðferð
Skerið djúpar raufar í hliðarnar á bringunum, svo hægt sé að fylla þær. Setjið spínatfyllinguna í, brúnið síðan bringurnar í heitri olíu, bragðbætið með salti og pipar, leggið í eldfast form og ofnsteikið við 200°C í 20 mín. Skerið hverja bringu í tvennt þegar borið er fram.
SpínatfyllingSkerið kjúklingabringuna í bita og setjið í matvinnsluvél ásamt eggjahvítu. Maukið, bætið rjóma saman við og síðan spínati, salti og pipar. Setjið í bringurnar og lokið.
Sósa og meðlætiSaxið laukinn, skerið stærstu sveppina í tvennt. Léttbrúnið laukinn í olíunni, bætið sveppunum á pönnuna og síðan spínatinu. Steikið áfram í 1-2 mínútur. Þá er hvítvíni, rjóma og kjúklingakrafti bætt á pönnuna, suðan látin koma upp og sósan þykkt með sósujafnaranum ef þarf.
MeðlætiGróft brauð hentar ágætlega með þessum rétti.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati










