Bakaðar perur með kanilstöngum

Hráefni
» 160 g smjördeig (í tveimur 80 g plötum)
» 2 stk. perur, nýjar
» 4 stk. kanilstangir
» Enskt eggjakrem
» 7 stk. eggjarauður
» 75 g sykur
» 5 dl mjólk
» 1 dl rjómi, léttþeyttur
» 1-2 tsk. vanilludropar
» Meðlæti
» 1 l vanilluís

Fyrir 4

Aðferð

Skerið smjördeigsplöturnar í tvennt og setjið á smurða bökunarplötu. Afhýðið perurnar, skerið í tvennt og fjarlægið kjarnann (með teskeið). Skerið grunnar rákir þvert á perurnar. Leggið peruhelmingana á smjördeigið og kanilstangirnar ofan á. Bakið í 15-20 mínútur við 200°C.

Enskt eggjakrem

Þeytið saman eggjarauður og sykur. Hitið mjólkina og hellið út í ásamt vanilludropum. Hrærið í með sleif þar til kremið þykknar. Gætið þess að ekki sjóði.

Hellið kreminu yfir í aðra skál á meðan það er að kólna og hrærið í öðru hvoru.

Léttþeytið rjómann og blandið honum saman við kremið þegar það er orðið kalt. Setjið kremið á diskana, bökuðu perurnar ofan á og berið fram með vanilluís í kúlum.

Hollráð

Veljið stórar, þroskaðar perur. Einnig er hægt að nota niðursoðnar perur. Þá er óhætt að frysta réttinn óbakaðan.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar