Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Karamellumarineraðar appelsínur
- Hráefni
- » 200 g sykur
- » 1 dl vatn
- » 4 stk. appelsínur
- » 5-6 dl appelsínusafi
Fyrir 4
Aðferð
Flysjið appelsínurnar, reynið að ná berkinum sem heillegustum. Skafið hvítu himnuna innan úr og hendið. Sneiðið börkinn síðan í örþunna strimla og setjið í pott með sykri og vatni. Sjóðið niður þar til sykurinn er orðinn að karmellu. Hellið þá appelsínusafanum út í, sjóðið áfram í 3-4 mín. og fleytið froðuna ofan af. Látið appelsínurnar kólna í leginum. Skerið appelsínurnar síðan í sneiðar, skiptið á diska og hellið marineringunni yfir. Skreytið með kumquats.
HollráðHægt er að skerpa bragð réttarins með því að setja skvettu af appelsínulíkjör saman við löginn - en það má ekki gera fyrr en hann er orðinn kaldur.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/432/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










