Austrænt með ostakremi og súkkulaði

Hráefni
» 8-10 stk. döðlur
» 6-8 stk. gráfíkjur
» 4-6 msk. rúsínur
» 6 msk. möndluflögur
» 3-4 msk. sykur
» 2-3 msk. smjör
» Mascarponekrem
» 500 g Mascarponeostur
» 2-3 msk. flórsykur
» 1-2 tsk. kaffiduft (instant)
» 2 dl rjómi
» 1 dl mjólk
» 1-2 tsk. vanilludropar
» Súkkulaðiskraut
» 100 g súkkulíki
» smjörpappír

Fyrir 4 - 6

Aðferð

Léttbrúnið smjörið á pönnu. Fjarlægið steina úr döðlum og sneiðið fíkjurnar. Brúnið svo döðlur og fíkjur á pönnu með rúsínum, möndlum og sykri. Kælið, en losið aðeins um svo að blandan verði ekki að einum klumpi.

Mascarponekrem

Setjið ost, flórsykur, kaffiduft, rjóma, mjólk og vanilludropa í matvinnsluvél og maukið vel. Setjið svo saman við blönduna af döðlum, fíkjum, rúsínum og möndlum. Setjið í litlar skálar eða eina stóra, eftir smekk. Kælið í 3-4 tíma.

Súkkulaðiskraut

Bræðið súkkulíkið í vatnsbaði og setjið í sprautupoka. Sprautið á hæfilega stóra smjörpappírsferninga og leggið á hvolf yfir skálina (sbr. mynd). Einnig er hægt að láta súkkulíkið leka af skeið og dreifa yfir smjörpappírinn. Þegar súkkulíkið er orðið stíft er pappírinn dreginn rólega af því.

Hollráð

Með þessu er ljúffengt að bera fram vanilluís.

Sprautið súkkulíkinu á smjörpappír (má nota skeið).

Leggið á hvolf ofan á ábætisskálina og flettið af.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar