Rauð greipaldin og appelsínusalat

Hráefni
» 6-7 stk. greipaldin, rauð
» 6-7 stk. appelsínur
» 4 msk. apríkósumarmelaði
» 1 msk. sítrónusafi
» 4 msk. kóríanderlauf, fersk
» vanilluís

Fyrir 4

Aðferð

Afhýðið greipaldin og appelsínur og skiptið í lauf. Blandið saman við apríkósumarmelaði, sítrónusafa og söxuð kóríanderlauf, látið standa í kæli í 1 klst. Setjið á eftirréttadiska eða allt í stóra skál. Þetta ávaxtasalat bragðast afar vel með vanilluís.

Hollráð

Allt eins má nota appelsínumarmelaði í þennan rétt. Gott getur verið að bragðbæta með appelsínulíkjör.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar