Ganache-krem í súkkulaðineti
- Hráefni
- » Ganache-krem
- » 250 g suðusúkkulaði
- » 1 peli rjómi
- » 100 g smjör, ósaltað
- » Súkkulaðinet
- » 100 g súkkulíki
- » smjörpappír
- » Jarðarberjasósa
- » 200-250 g jarðarber (fersk)
- » 1 dl appelsínusafi
- » 4 tsk. flórsykur
Fyrir 4
Aðferð
Ganache-kremBræðið saman í potti suðusúkkulaði, rjóma og ósaltað smjör. Má ekki sjóða. Látið standa í kæli í a.m.k. 12 klst. og þeytið kremið svo í hrærivél. Gætið þess að hraðinn sé ekki of mikill og þeytið þar til kremið verður rjómakennt (ekki of lengi).
Setjið kremið síðan með skeið ofan á súkkulaðinetið. Leggið smjörpappírinn saman og látið kólna. Takið smjörpappírinn varlega utan af og skiptið á eftirréttadiska.
SúkkulaðinetBræðið súkkulíkið í vatnsbaði, setjið í sprautupoka og sprautið þunnt á hæfilega stóra smjörpappírsferninga (10x20 cm). Rúllið þeim upp, svo súkkulíkið stirðni í sveig eða boga.
JarðarberjasósaSetjið fersk jarðarber, appelsínusafa og flórsykur í matvinnsluvél. Hellið síðan varlega í kringum ganache-kremið í netinu.
HollráðGætið þess að súkkulíkisnetið sé ekki of þunnt. Kælið vel áður en pappírinn er fjarlægður.
Sprautið súkkulíkinu á smjörpappír (má einnig nota skeið).
Setjið eina skeið af kreminu á miðja pappírsræmuna.
Endarnir lagðir saman. Kælt og síðan flett af.
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum









