Blandaður ís með berjasósu
- Hráefni
- » 4 kúlur jarðarberjaís
- » 4 kúlur myntuís
- » 4 kúlur vanilluís
- » Súkkulaðiskraut
- » 200-300 g súkkulíki
- » smjörpappír (4 stk. 15x15 cm)
- » Jarðarberjasósa
- » 200 g jarðarber (fersk)
- » 1 dl appelsínusafi
- » 2-3 msk. sykur
- » Bláberja- og jarðarberjasósa
- » 200 g jarðarber, fersk
- » 100 g bláber, fersk eða frosin
- » 2 msk. sítrónusafi
- » 3-4 msk. sykur
Fyrir 4
Aðferð
Bræðið súkkulíkið við vægan hita og sprautið því óreglulega á smjörpappír úr kramarhúsi eða hellið úr skeið. (Einnig má nota sprautupoka). Passið að súkkulíkið sé ekki of þunnt á pappírnum, þannig er minni hætta á að það brotni þegar smjöpappírinn er tekinn af.
Raðið þremur tegundum af ís í kúlum hlið við hlið á smjörpappírinn, ofan á súkkulíkið, og leggið síðan smjörpappírinn saman þannig að súkkulíkið myndi eins konar net utan um kúlurnar. Látið súkkulíkið stífna vel áður en pappírinn er tekinn utan af.
Berið fram á eftirréttadiskum og setjið sósurnar í kring.
JarðarberjasósaSetjið fersk jarðarber, appelsínusafa og 2-3 msk. sykur í matvinnsluvél og maukið. Setjið svo í kringum ísinn.
Bláberja- og jarðarberjasósaSetjið fersk jarðarber, bláber, sítrónusafa og sykur í matvinnsluvél og maukið. Setjið ásamt jarðarberjasósunni í kringum ísinn.
HollráðÞennan rétt verður að útbúa rétt áður en hann er borinn fram.
Sprautið súkkulíkinu á smjörpappírinn.
Setjið ískúlur á miðjan pappírinn.
Leggið endana saman. Kælið áður en pappírnum er flett af.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati










