Rauðvínsmarineruð berjablanda

Hráefni
» 1 askja hindber
» 1 askja jarðarber
» 1 askja rifsber
» Rauðvínsmarinering
» 4 dl rauðvín, óáfengt
» 2-3 msk. púðursykur
» 8 stk. jarðarber
» 8 stk. hindber
» Súkkulaðinet
» 100-150 g súkkulíki
» smjörpappír (4 stk. 10x15 cm)

Fyrir 4 - 6

Aðferð

Byrjið á því að taka rifsberin af stilkunum og skola þau vel ásamt hinum berjunum. Setjið í skál.

Rauðvínsmarinering

Setjið rauðvín, púðursykur, jarðarber og hindber í matvinnsluvél og maukið vel þar til sykurinn hefur leyst upp. Hellið yfir berin og látið liggja í skálinni í 1-2 klst. í kæli áður en þau eru borin fram. Setjið ber og safa í glös eða ábætisskálar.

Súkkulaðinet

Súkkulíki sprautað eða hellt úr skeið á smjörpappírinn sem síðan er lagður utanum glasið eða skálina. Látið súkkulíkið stífna vel á glasinu áður en pappírinn er fjarlægður.

Hollráð

Þessi réttur fer einkar vel í kampavínsglösum, rauðvínsglösum, hvítvínsglösum eða háum eftirréttaskálum.

Sprautið súkkulíkinu á pappírinn.

Vefjið þéttingsfast utan um glasið. Kælið.

Dragið pappírinn varlega af.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar