Ber með sabayon og berjasósum

Hráefni
» 1 askja jarðarber, fersk
» 1 askja hindber, fersk
» 1 askja blæjuber, fersk
» 1 askja rifsber, fersk
» 4 rifsberjastilkar til skrauts (teknir úr öskjunni)
» Sabayonsósa
» 4 stk. eggjarauður
» 3 dl eplacider
» 2 msk. sykur
» 1 dl rjómi, létt þeyttur
» Jarðarberjasósa
» 200 g jarðarber, fersk eða fryst
» 2 msk. sítrónusafi
» 100 g sykur
» 1 tsk. vanilludropar
» Bláberjasósa
» 200 g bláber, fersk eða fryst
» 1-2 msk. sítrónusafi
» 100 g sykur

Fyrir 6 - 8

Aðferð

Skiptið berjunum í skálar eða djúpa diska. Hellið sósunni í kringum berjaklasana, sabayonsósuna neðst og síðan hinar ofan á. Leggið rifsberjastilk til skrauts efst á hvern disk.

Sabayonsósa

Pískið saman í potti eggjarauður, sykur og eplacider. Þegar sósan er orðin vel freyðandi (eftir um 2 mín.) er létt þeytta rjómanum bætt saman við með sleif.

Jarðarberjasósa

Allt sett yfir til suðu og soðið 2-3 mín. Setjið síðan í matvinnsluvél og maukið eða pískið vel saman. Kælið.

Bláberjasósa

Allt sett yfir til suðu og soðið 2-3 mín. Setjið síðan í matvinnsluvél og maukið eða pískið vel saman. Kælið.

Hollráð

Hægt að búa til allar tegundir af berjasósum með þessum hlutföllum.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar