Jarðarberjamousse

Hráefni
» 500 g Mascarponeostur (2 dósir)
» 100 g jarðarber, fersk eða fryst
» 4-5 msk. sykur
» 1 peli rjómi, léttþeyttur
» Berjasósa
» 100 g jarðarber, fersk eða fryst
» 100 g hindber, fersk eða fryst
» 100 g sykur
» 2 msk. sítrónusafi
» Súkkulaðiskraut
» 100 g súkkulíki
» 4 stk. smjörpappír 10x10 cm

Fyrir 4

Aðferð

Blandið saman Mascarponeosti, jarðarberjum og sykri og maukið í matvinnsluvél. Setjið í skál og blandið saman við léttþeyttan rjóma. Setjið í bikara eða skálar, jarðarberjamousse og berjasósu til skiptis. Kælið í 4-6 klst.

Berjasósa

Blandið öllu saman í pott og sjóðið í 1 mínútu. Maukið síðan í matvinnsluvél. Kælið vel fyrir notkun.

Súkkulaðiskraut

Súkkulíkið brætt og sett á smjörpappírinn með skeið. Látið stífna. Smjörpappírinn rifinn varlega frá og súkkulíkisnetið lagt ofan á hvern bikar eða skál. Skreytið með ferskum berjum eða litríkum ávöxtum.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar