Vanilluís með karamellumöndlum og ávöxtum

Hráefni
» 8 stk. vanilluískúlur (tvær á mann)
» Möndlur og ávextir í karamellu
» 50 g smjör
» 5 msk. sykur
» 8-10 stk. döðlur
» 6 msk. möndluflögur
» 4 msk. furuhnetur
» 4 msk. rúsínur
» 1 stk. epli, flysjað og sneitt
» 8 stk. gráfíkjur, þurrkaðar

Fyrir 4

Aðferð

Skiptið rjómaísnum í skálar. Setjið heita karamellubráð með ávöxtum yfir og berið fram strax.

Möndlur og ávextir í karamellu

Smjörið léttbrúnað á pönnu. Setjið sykurinn út á og blandið vel saman við, setjið síðan ávextina á pönnuna. Steikið þar til sykurinn fer að brúnast. Setjið heitt yfir ísinn.

Hollráð

Mjög gott er að bæta líkjör á pönnuna og blanda saman við ávextina og möndlurnar.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar