Hrísgrjóna- og skelfiskkaka
- Hráefni
- » 250 g hrísgrjónablanda (Basmati & Wild frá Tilda)
- » 5 dl kjúklingasoð (vatn og 1 Knorr-teningur)
- » 1 stk. laukur
- » 3 msk. matarolía
- » 3-4 tsk. matarlímsduft, sléttfullar
- » 1 stk. smokkfiskbolur
- » 250 g hörpuskel
- » 250 g rækjur
- » 2 dl kjúklingasoð
- » ílangt form (20-24 cm)
- » plastfilma
Fyrir 12 - 14
Aðferð
Skerið smokkfiskinn í þunna hringi. Setjið smokkfisk og hörpuskelfisk í sjóðandi kjúklingasoð í eina mínútu, bætið þá rækjunum út í. Takið af hitanum og sigtið soðið frá. Geymið á meðan hrísgrjónin eru elduð.
Saxið laukinn og léttsteikið með hrísgrjónunum í olíu, brúnið ekki. Bætið kjúklingasoðinu á pönnuna og sjóðið við vægan hita undir loki í 20 mínútur. Þegar grjónin eru fullsoðin er helmingur þeirra maukaður í matvinnsluvél og síðan blandað saman við hinn helminginn. Matarlímsduftinu blandað saman við á meðan hrísgrjónin eru heit og síðan hörpuskel, smokkfiski og rækjum. Setjið blönduna í formið sem hefur verið klætt innan með plastfilmu og pressið vel niður. Geymið í kæli í 6-8 klst., losið þá úr forminu, skerið í sneiðar og berið fram.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati










