Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Grafinn lax með anís og dilli
- Hráefni
- » 1200-1500 g laxaflak, snyrt og beinhreinsað
- » 4 msk. púðursykur
- » 8 msk. anísduft
- » 2 pottar/búnt dill, ferskt
- » 2 pakkar graflaxkrydd (fæst tilbúið)
- » Sósa
- » 2 dósir sýrður rjómi, 18%
- » 1 dl rjómi
- » 4 msk. púðursykur
- » 1 pottur/búnt dill, ferskt
- » 1 msk. anísduft
- » 2 msk. sítrónusafi
Fyrir 12
Aðferð
Setjið graflaxkrydd ásamt púðursykri, anísdufti og dilli í matvinnsluvél og maukið vel. Stráið yfir flakið (ekki roðhliðina) leggið það í bakka, setjið plastfilmu yfir og geymið í kæli í 2-3 sólarhringa. Mesta kryddið er svo skafið af áður en laxinn er skorinn í þunnar sneiðar og borinn fram.
SósaAllt hráefni sett í matvinnsluvélina og blandað vandlega saman. Berið fram í skál.
MeðlætiBerið fram með ristuðu brauði og smjöri.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/448/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










