Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Smálúða og hörpuskel í kókos
- Hráefni
- » 500 g smálúða
- » 500 g hörpuskelfiskur
- » Sítrónuvatn
- » 4 dl vatn
- » safi úr 1 sítrónu
- » 1-2 tsk. salt
- » Kókosmarinering
- » 6 stk. vorlaukar
- » 3 stk. paprika (rauð, gul og græn)
- » 2-3 stk. tómatar
- » 8 msk. graslaukur
- » 3 msk. sítrónusafi
- » 1 tsk. salt
- » 4 dl kókosmjólk (ein dós)
- » 4 msk. kókosmjöl
Fyrir 12
Aðferð
Hreinsið sinar af hörpuskelfiskinum og skerið smálúðuna í bita. Sjóðið hörpuskelfisk og lúðubita í léttsöltu sítrónuvatni í 1-2 mínútur. Soðið sigtað frá.
KókosmarineringSkerið grænmetið í teninga og blandið öllu hráefni í marineringuna saman. Setjið saman við fiskinn. Látið standa í 1-2 klst. áður en borið er fram.
HollráðSoðinn humar eða rækjur henta ekki síður í þennan rétt.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/450/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










