Smokkfisksalat með suðrænni sósu

Hráefni
» 300-400 g pasta að eigin vali
» 4-5 stk. smokkfiskar
» 1/2 l kjúklingasoð (vatn og
» 1/2 Knorr-teningur)
» Suðræn sósa
» 8 stk. tómatar
» 8-10 stk. hvítlauksrif
» 6 msk. steinselja, fersk
» 4 msk. kóríanderlauf, fersk
» 2 dl hvítvínsedik
» 1/2 dl ólífuolía
» salt og pipar

Fyrir 12

Aðferð

Sjóðið pastað skv. leiðbeiningum á pakka, skolið og kælið. Þverskerið smokkfiskinn (svo úr verði hringir) og sjóðið í 1-2 mín. í kjúklingasoðinu.

Blandið smokkfiskinum saman við pastað.

Suðræn sósa

Öllu blandað saman í matvinnsluvél og maukað vel. Kryddið með salti og pipar. Hellið saman við pasta og smokkfisk - leggið nokkra smokkfiskhringi efst til skrauts.

Hollráð

Berið fram með grófu brauði eða heitu hvítlauksbrauði.

Flakið beinhreinsað með lítilli töng.

Kryddmaukið lagt á flakið.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar