Skötuselur í saffranrjóma

Hráefni
» 2-2,5 kg skötuselur
» 3 stk. laukar
» 400 g sveppir
» 3-4 dl hvítvín, óáfengt
» 2 glös saffran (2 g)
» 1 l rjómi
» 1-2 kjúklingateningar (Knorr)
» 5-6 msk. matarolía til steikingar
» 4-5 msk. hveiti
» salt og pipar
» maizenamjöl eða sósujafnari

Fyrir 10 - 12

Aðferð

Skerið skötuselinn í 80-90 g bita, veltið upp úr hveiti og létt brúnið í heitri olíunni. Færið yfir í stóran pott.

Saxið laukinn, sneiðið sveppina og léttbrúnið hvort tveggja í olíunni. Setjið saman við skötuselinn. Hellið hvítvíninu yfir, látið suðuna koma upp og bætið þá rjómanum saman við ásamt kjúklingateningum og saffrani. Sjóðið í 10-15 mínútur, þykkið sósuna með sósujafnara ef hún er ekki nógu þykk.

Berið fram í skál.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar