Blandað álegg í kjúklingasúpuhlaupi

Hráefni
» 400 g blandað álegg, t.d. skinka, hangikjöt, spægipylsa o.s.frv.
» 1 l vatn
» 1 pakki kjúklingasúpa með núðlum
» 18 tsk. matarlímsduft, sléttfullar
» ílangt form, 20-24 cm
» plastfilma

Fyrir 14

Aðferð

Skerið áleggið í strimla. Sjóðið súpuna skv. leiðbeiningum á pakka, bætið matarlímsduftinu varlega saman við og pískið vel. Bætið álegginu út í, blandið vel saman, og setjið í formið sem klætt hefur verið innan með plastfilmu. Kælið í 12 tíma og setjið í heitt vatnsbað til að losa úr forminu. Skerið í sneiðar.

Meðlæti

Þessi réttur bragðast vel með grófu brauði og/eða heitri kartöflumús.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar