Skelfisk- og dillterta

Hráefni
» 400 g hörpuskelfiskur
» 400 g rækjur
» Sítrónuvatn
» 1/2 l vatn
» 1 tsk. salt
» safi úr 1 sítrónu
» Fylling
» 400 g rjómaostur
» 100 g sýrður rjómi, 11%
» 1 pottur/búnt dill, ferskt
» 9 tsk. matarlímsduft, sléttfullar
» 1 peli rjómi, léttþeyttur

Fyrir 12 - 14

Aðferð

Hreinsið sinar af hörpuskelfisknum og sjóðið hann í 1-2 mínútur í léttsöltu sítrónuvatni.

Fylling

Blandið rjómaosti, sýrðum rjóma og dilli saman, maukið í matvinnsluvél. Setjið síðan í pott og látið suðuna koma upp. Blandið matarlímsduftinu saman við með pískara.

Velgið rækjurnar með því að blanda þeim saman við hörpuskelfiskinn í soðinu, sigtið soðið síðan frá og blandið skelfiskinum saman við rjómaostblönduna. Léttþeytið rjómann og blandið saman við blönduna með sleif.

Setjið í skálar sem hafa verið penslaðar að innan með olíu, kælið í 6-8 klst. Losið úr formunum með því að setja þau í heitt vatnsbað. Skerið í sneiðar.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar