Reyktur lax og spergilkálskaka

Hráefni
» 250 g spergilkál, frosið
» 200-250 g reyktur lax, roðflettur og beinhreinsaður
» 5 dl rjómi
» 8-9 tsk. matarlímsduft, sléttfullar
» salt og pipar
» plast- eða álform, 20-24 cm langt
» plastfilma

Fyrir 14

Aðferð

Sjóðið spergilkálið í 2-3 mín. í léttsöltu vatni. Sigtið vatnið frá, setjið helminginn af kálinu í matvinnsluvél með matarlímsduftinu. Skerið laxinn í litla bita og blandið saman við maukið ásamt afganginum af spergilkálinu. Léttþeytið rjómann og blandið saman við með sleif, bragðbætið með salti og pipar ef vill. Setjið í form, sem klætt hefur verið innan með plastfilmu, geymið í kæli í 12-15 klst. Setjið formið í heitt vatnsbað til að losa kökuna úr, skerið í sneiðar.

Meðlæti

Berið fram með salati og edikssósu eða tilbúnum salatsósum (úr sýrðum rjóma).

Hollráð

Þennan rétt má auðveldlega matreiða 1-2 dögum fyrir notkun.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar