Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Lárperuterta
- Hráefni
- » 150 g beikonstrimlar
- » 500 g rjómaostur
- » 3-4 stk. lárperur (avocado)
- » 5 dl rjómi, léttþeyttur
- » 9 tsk. matarlímsduft, sléttfullar
- » ílangt form 20-24 cm
- » plastfilma
Fyrir 12 - 14
Aðferð
Beikonið þurrsteikt á pönnu og fitunni hellt af. Rjómaostinum bætt á pönnuna og hitað vel. Matarlímsduftinu bætt saman við, pískað vel saman. Léttþeytið rjómann og blandið saman við rjómaostinn með sleif þegar hann er orðinn volgur.
Flysjið lárperuna og fjarlægið steininn, skerið í þunnar sneiðar og blandið saman við. Setjið í form og geymið í kæli í 12 klst. Losið úr forminu með því að setja í heitt vatnsbað, skerið í sneiðar.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/459/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










