Rækjuterta

Hráefni
» 1 kg rækjur
» 1 pottur/búnt graslaukur, ferskur
» 250 g hvítlauksostur
» 9 tsk. matarlímsduft, sléttfullar
» 1 peli rjómi, léttþeyttur
» ílangt eða hringlaga form (24-26 cm)
» plastfilma
» Graslauks- og laxasósa
» 2 dósir sýrður rjómi (11%)
» 150 g reyktur lax
» 1 pottur/búnt graslaukur
» 2-3 msk. sítrónusafi
» salt og pipar

Fyrir 12 - 14

Aðferð

Maukið 250 g af rækjunum í matvinnsluvél, setjið í pott og hitið með hvítlauksostinum. Matarlímsduftinu blandað vel saman við. Takið afganginn af rækjunum (gott er að hafa þær ylvolgar), graslauk og rjóma og blandið rólega saman við hvítlauksostinn og maukuðu rækjurnar. Setjið í plastfilmuklætt form og kælið í 6-8 klst. Losið í heitu vatnsbaði og skerið í sneiðar.

Graslauks- og laxasósa

Öllu blandað saman í matvinnsluvél. Látið sósuna standa í 1-2 klst. áður en hún er borin fram í sér skál.

Hollráð

Þennan rétt má laga með allt að 3-4 daga fyrirvara.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar