Tortellini með spergilkáli og reyktum laxi

Hráefni
» 400 g tortellini, ferskt
» 2-3 l vatn, létt saltað
» 1-2 msk. ólífuolía í vatnið
» Meðlæti
» 600 g reyktur lax í sneiðum
» 600 g spergilkál
» 8 msk. furuhnetur
» Sósa
» 300 g reyktur lax
» 200 g spergilkál
» 200 g sýrður rjómi
» 1 dl rjómi
» 1 dl mjólk
» salt og svartur pipar úr kvörn

Fyrir 4

Aðferð

Sjóðið pastað í 3 mínútur. Það má síðan kæla - ekki skiptir öllu máli hvort pastað er borið fram heitt eða kalt. Meðlæti Reyktu laxasneiðarnar brotnar saman (óreglulega) og lagðar á disk ásamt soðnu spergilkáli (má einnig vera kalt) yfir pastað. Brúnið furuhneturnar á þurri, heitri pönnu og stráið yfir ásamt sósunni. Sósa Allt sett í matvinnsluvél og maukað. Kryddað með salti og pipar úr kvörn. Hellt yfir réttinn.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar