Hagkaup
|
mbl
|
19. maí
Kálfasteik m/steiktri pólentu, blómkáls- og spínatmauki og léttsýrðu grænmeti
- Hráefni
- » Kálfasteik
- » 800 g hreinsaður kálfavöðvi
- » ólífuolía til steikingar
- » 1 -2 msk. smjör
- » 2 stk. hvítlauksgeirar
- » 4 greinar timian
- » Pólenta
- » 100 g pólenta
- » 2 msk. fínt rifinn parmesan
- » salt
- » hvítur pipar
- » 1/2 rif pressaður hvítlaukur
- » ólífuolía til steikingar
- » Blómkáls- og spínatmauk
- » 100 g blómkál
- » 15 g smjör
- » 150 ml rjómi
- » 15 blöð spínat
- » salt
- » Léttsýrt grænmeti
- » 50 g blómkál
- » 50 g brokkolí
- » 50 g gulrætur
- » 50 ml ólífuolía extra virgin
- » 1/2 skallottlaukur fínt skorinn
- » 1 msk. sherry edik
- » 1 msk. fínt skorin ítölsk steinselja
Fyrir 4
Aðferð
Kálfasteik Brúnið vöðvann upp úr heitri ólífuolíunni, setjið svo smjörið, timianið og hvítlaukinn á pönnuna, ausið smjörinu yfir steikina. Setjið allt saman í eldfast mót og bakið í 150 gráðu heitum ofni í ca. 10 mínútur. Pólenta Eldið pólentu eftir leiðbeiningum á pakka, bætið parmesanostinum og hvítlauknum út í og smakkið til með salti og pipar. Setjið í bakka og kælið og setjið farg yfir. Skerið út og steikið á pönnu upp úr ólífuolíu. Blómkáls- og spínatmauk Blómkál soðið í rjóma þar til það er mjúkt í gegn. Hreinsið spínatið og maukið allt saman og bragðið til með salti. Léttsýrt grænmeti Grænmeti skorið smátt niður steikt í 1/4 af ólífuolíunni. Síðan er afganginum af ólífuolíunni og hinu hráefninu blandað út í með grænmetinu, smakkað til með salti og hvítum pipar.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/465/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










