Kalt danskt gulrótarsalat m/kúmeni og dilli

Hráefni
» 1 stór gulrót
» 1 msk. jómfrúarólífuolía
» 1 tsk. kúmen
» hnífsoddur af safran
» 1 dl grænmetiskraftur
» gróft skorið ferskt dill

Fyrir 1 - 2

Aðferð

Þvoið og skrælið gulræturnar og skerið í skífur (ekki allt of grófar). Hitið olíuna í litlum potti og steikið gulræturnar með kúmeni og safran, látið steikjast um stund þar til fallega brúnt og bragðið losnar frá rótunum. Bætið grænmetissoðinu í og sjóðið niður þar til vökvinn leggst næstum því utan um ræturnar, kælið. Þegar borið er fram eru ræturnar teknar úr kæli og látnar ná stofuhita, þeim velt upp úr olíu og dilli og kryddað með salti og pipar. Raðið upp á disk sem turn.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar