Hagkaup
|
mbl
|
19. maí
Beikon kartöflustappa
- Hráefni
- » 8-10 stk. bökunarkartöflur, bakaðar á 200°C þar til þær eru klárar ca. 50 mín. skornar í tvennt og skafið innan úr.
- » 80 g beikon, saxað frekar fínt
- » 6 stk. skalottlaukar fínt saxaðir
- » 2 tsk. Fínt saxað tímjan
- » 80 g Smjör
- » 110 ml rjómi
- » nýmulinn hvítur pipar og salt
Aðferð
Á meðan kartöflurnar eru bakaðar steikið þá beikonið á góðum hita fyrst og bætið svo lauknum og tímjaninu og steikið saman þar til laukurinn er orðinn glær. Þegar kartöflurnar eru tilbúnar er skafið innan úr þeim og þær stappaðar með smjörinu, rjómanum hrært saman við og síðan beikoninu og lauknum. Kryddið með salti og nýmuldum hvítum pipar.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/470/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira








