Pörusteik

Hráefni
» 1 1/2 kg mögur svínasíða (pörusteik)
» Maldon sjávarsalt og pipar
» 1/2 ltr. kryddsoð
» 1 msk. sojasósa
» 1 1/2 msk. hveiti
» 10 g smjör
» Kryddsoð
» 1 stk. laukur
» 1 stk. gulrót
» 1 l vatn
» 100 ml ólífuolía
» 10 kóríander fræ
» 5 piparkorn
» 2 stk. negull
» 1 lárviðarlauf

Fyrir 5 - 6

Aðferð

Skerið með 1/2 cm millibili í steikina og leggið í ofnfast fat eða pott með fitunni niður, látið vatn yfir og sjóðið í 20 mín. setjið svo steikina á rist. Nuddið svo Maldon sjávarsalti á steikina og kryddið með pipar. Eldið í ofni við 220°C í 20 mín, lækkið svo niður í 180°C, bætið í kryddsoði og sojasósu. Bakið áfram í 1 1/2 tíma, oft er gott að setja grillið í botn á lokamínútunum. Hellið soðinu af, fleytið af mesta fitu og þykkið með smjörinu og hveitinu (sem hefur verið hrært saman í potti). Framreiðið með heimalöguðu rauðkáli og kartöflum. Kryddsoð Grænmetið er léttsteikt, vatni er bætt í, látið sjóða í 1 klst. og sigtað fyrir notkun.

Þessi uppskrift er notuð í Heimalagað rauðkál

Meðlæti

Heimalagað rauðkál

Hráefni
» 25 g smjör
» 4 msk. rifsberjagel (sulta)
» 2 tsk. balsamic edik
» 1 tsk. Maldon sjávarsalt
» 500 g fínsaxað rauðkál

Aðferð

Bætið öllu nema rauðkálinu í pott þegar smjörið og rifsberjagel (sulta) er brætt, bætið þá í rauðkálinu, eldið með loki í 15 mínútur. Hækkið svo hitann og takið lokið af, látið rauðkálið steikjast í 3 mín. og smakkið til. Gott er að bæta við eplum í teningum þegar 2 mín. eru eftir af elduninni.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar