Tandori kryddaðar kjúklingabringur með dverg Naan brauði og jógúrt-agúrku sósu

Hráefni
» 4 skinnlausar kjúklingabringur eða lundir
» 2 msk. tandori kryddblanda
» 2 msk. smjör eða ólífuolía

Fyrir 4

Aðferð

Kjúklingabringurnar eru steiktar stökkar á pönnu og látnar eldast rólega í ofni við 100°C í 10 mín. eða þar til fullri eldun hefur verið náð.

Þessi uppskrift er notuð í Dverg Naan brauð Köld jógúrtsósa,

Meðlæti

Dverg Naan brauð

Hráefni
» 250 g hveiti
» 1 tsk. lyftiduft
» 2 msk. hrein jógúrt
» 1 tsk. salt
» 110-120 ml vatn
» Hvítlauks og kóríander olía
» 100 ml ólífuolía
» 1 rif hvítlaukur
» Nokkur lauf saxað ferskt kóríander.

Aðferð

Öllu blandað saman en vatnið er sett síðast, hnoðað létt og látið jafna sig í 1 klst. með rökum klút yfir, mótað í litlar kúlur og rúllað þunnt út. Bakið brauðin undir grilli eða steikið á pönnu, líka er hægt að nota útigrill. Bakið í nokkrar mínútur, kryddið með hvítlauk og kóríander olíu, salti og fersk möluðum pipar. Hvítlauks og kóríander olía Blandið öllu saman, gott að eiga olíu til í kæli og er hægt að nota á ýmsan mat.

Köld jógúrtsósa

Hráefni
» 100 ml hrein jógúrt (hægt er að nota sýrðan rjóma eða ab mjólk ef það hentar betur)
» 1-2 rif hvítlaukur
» 1/2 söxuð agúrka
» 1/2 lime (safinn)
» 1/2 tsk. salt
» Nokkur blöð ferskt kóríander

Aðferð

Öllu er blandað saman og kryddað.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar