Hagkaup
|
mbl
|
19. maí
Lambalæri soola masala m/pilau hrísgrjónum og korma sósu
- Hráefni
- » 1 stk. lambalæri
- » 2 msk. olía
- » 2 msk. smjör
- » 10 stk. kardimommur
- » 1 msk. korianderfræ
- » 1 tsk. svartur pipar
- » 1 msk. fennelfræ
- » 1 stk. laukur
- » 6 rif hvítlaukur
- » 150 g koriander
- » 1 tsk. salt
- » 150 g jógúrt
- » Salt og pipar
Fyrir 6 - 8
Aðferð
Hitið olíuna í potti og steikið kardimommurnar, korianderfræin, svarta piparinn og fennelfræin upp úr olíunni. Bætið smjörinu út í ásamt söxuðum lauknum og hvítlauknum og steikið áfram. Slökkvið undir pottinum, bætið koriandernum og saltinu út í og kælið. Maukið í matvinnsluvél ásamt jógúrtinu. Snyrtið lambalærið, kryddið með salti og pipar og steikið lærið á pönnu. Setjið soola masala maukið á lærið og eldið inni í ofni á 150°c í 70 mín.Þessi uppskrift er notuð í Korma sósa Pilau hrísgrjón,
Meðlæti
Korma sósa
- Hráefni
- » 200 g kashewhnetur
- » 300 ml vatn
- » 2 msk. smjör
- » 1 stk. lárviðarlauf
- » 2 stk. kardimommur
- » 50 g jógúrt hrein
- » 1 tsk. salt
- » safi úr 1/2 sítrónu
Aðferð
Leggið kashewhneturnar í bleyti í vatninu í 10 mín. og sjóðið þær svo í 25 mín. Maukið þær í matvinnsluvél. Bræðið smjörið í potti ásamt lárviðarlaufinu og kardimommunum. Bætið kashewhnetumaukinu út í og sjóðið í 5 mín. Hrærið jógúrtið saman við og sjóðið í 6 mín. til viðbótar. Bragðbætið með salti og sítrónusafa.Pilau hrísgrjón
- Hráefni
- » 40 g smjör
- » 10 stk. stjörnuanis
- » 2 stk. kardimommur
- » 1 stk. kanilstöng
- » 1 stk. lárviðarlauf
- » 400 g basmati hrísgrjón
- » 8 dl vatn
- » Salt
Aðferð
Bræðið smjörið í potti, bætið kryddunum út í og steikið í 3 mín. Bætið hrísgrjónum út í og blandið vel saman við kryddjurtirnar. Hellið loks vatninu út í og sjóðið hrísgrjónin í 15 mín. Kryddið með salti.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/480/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










