Grafin rjúpa með bláberja vinaigrette

Hráefni
» 4 rjúpubringur, úrbeinaðar
» 1 dl gróft sjávarsalt
» 1/2 dl púðursykur
» 1-2 mtsk. ferskt timjan
» 1 mtsk. ferskt rósmarin
» 4-5 lauf fersk salvía söxuð smátt
» 3-4 einiber, brotin í morteli
» Svartur pipar úr kvörn
» Skvetta af portvíni og koníaki ef vill
» Bláberja vinaigrette
» 2 dl jómfrúarólífuolía
» 1/2-1 dl balsamik edik eða gott rauðvínsedik
» Örlítið salt úr kvörn
» 1 askja bláber

Fyrir 4

Aðferð

Skolið bringurnar og þerrið. Leggið á gott fat. Blandið saman sykri og salti. Þekið vel yfir bringurnar báðum megin. Blandið saman öllum kryddunum og þekið jafnt yfir bringurnar. Í lokin skvettið smá portvíni og/eða koníaki yfir bringurnar. Þekið með plasti og látið standa í kæli, helst yfir nótt. Bláberja vinaigrette Hrærið olíuna og edikið létt saman. Skerið bláberin í bita og setjið í sósuna. Hrærið varlega saman og smakkið til. Bætið í olíu eða ediki eins og ykkur þykir. Sneiðið rjúpubringurnar í mjög þunnar sneiðar og raðið á disk. Setjið gott salat í miðjuna (helst rucola) og hellið bláberja vinaigrettuna jafnt yfit kjötið og salatið. Skreytið með fersku timjan.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar