Hagkaup
|
mbl
|
19. maí
Yakitori kjúklingur á teini
- Hráefni
- » 700-800 g kjúklingabringur
- » 2 paprikur, rauð eða gul
- » 2 laukar
- » 8 grillteinar
- » Yakitori sósa
- » 1 flaska Blue Dragon japönsk soyasósa (150 ml)
- » 1 flaska Blue Dragon Mirin (150 ml)
- » 3 msk. sykur
Fyrir 4
Aðferð
Leggið grillteinana í vatn í 20 mínútur (ef úr tré). Sjóðið eggnúðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Blandið innihaldi Yakitori sósunnar saman í pott og látið suðuna koma upp. Látið standa þar til hún hefur kólnað. Skerið kjúklinginn, paprikuna og laukinn í stóra bita og þræðið upp á grilltein. Dýfið / penslið spjótin í helmingnum af sósunni og grillið í ofni við 200° í 10-12 mín eða á útigrilli. Penslið vel nokkrum sinnum og snúið á meðan grillað er. Berið fram með afganginum af Yakitori sósunni og eggnúðlum. Meðlæti 1 pakki Blue Dragon eggnúðlur
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/484/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










