Hagkaup
|
mbl
|
19. maí
Marinerað nautakjöt með sesamsósu
- Hráefni
- » 4 bitar af nautakjöti t.d. nautafille
- » 4-5 salatlaukar eða hálfur púrrulaukur
- » 2 gulrætur
- » Sósa
- » 3 msk. sesamfræ
- » 2 tsk. olía
- » 2 dl Blue Dragon japönsk soya
- » 1,5 dl Blue Dragon Mirin
- » Marinering
- » 1 tsk. Blue Dragon Sesamolía
- » 1 hvítlauksgeiri
- » 1 tsk. sykur
Fyrir 4
Aðferð
Setjið Sesamolíuna, hvítlauksgeirann og sykurinn í blandara og blandið á mesta hraða í mínútu. Hellið marineringunni í skál og setjið kjötið útí og látið standa í minnst 45 mínútur. Grillið kjötið á grilli eða í ofni við 225°. Ef notaður er hitamælir, þá næst meðalsteiking við 55°. Látið kjötið standa í u.þ.b. 1 mínútu og skerið skáhallt í þunnar sneiðar. Raðið á disk eða fat, skreytið svo í kring með þunnt skornum lauk og gulrótum. Borið fram með sósunni ásamt hrísgrjónum eða núðlum. Sósan Þurrsteikið sesamfræin á pönnu við meðalhita í ca. 2-3 mínútur. Setjið í blandara eða myljið í mortéli. Bætið við olíu, soyasósu og mirin og látið sósuna standa í kæli í u.þ.b. 1 klst áður en borið er fram.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/485/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










