Hagkaup
|
mbl
|
19. maí
Norivafin sherry-soja marineraður hörpudiskur með soja hvítlaukssósu
- Hráefni
- » 200 ml sojasósa
- » 8 msk. sherry
- » 16 stk. hörpudiskur
- » 4 rif hvítlaukur
- » 4 stk. nori blað
- » 1 búnt graslaukur
Fyrir 4
Aðferð
Takið helminginn af sojasósunni og blandið sherryinu saman við. Snyrtið hörpudiskinn og marinerið hann upp úr sherry-sojasósunni í 10 mín. Rífið hvítlaukinn fínt niður og blandið helmingnum af honum saman við afgangs sojasósuna. Klippið noriblöðin í 4 lengjur, leggið hörpudiskinn og graslaukinn í hverja lengju og vefjið utan um hörpudiskinn. Takið hinn helminginn af rifna hvítlauknum og setjið smá á hvern hörpudiskinn. Berið fram með limebátum, wasabi, pikkluðu engiferi og soya-hvítlaukssósunni.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/487/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










