Hagkaup
|
mbl
|
19. maí
Tiramisu
- Hráefni
- » 2 stk. egg
- » 140 g sykur
- » 250 g ostur (Castelli mascarpone)
- » 240 g rjómi
- » 3 g matarlím
Aðferð
Egg og sykur er hitað saman upp í ca. 50° með matarlíminu, svo pískað létt og ljóst. Osturinn og óþeyttur rjóminn er unnið létt saman, eggjablöndunni er svo blandað saman við ostinn. Ladyfingers eru bleyttir upp í kaffi, einnig er gott að setja koníak eða góðan kaffilíkjör saman við kaffið ef vill. Byrjað er að setja vel blautan botn í form og helminginn af blöndunni þar yfir, þetta er svo endurtekið. Kakan þarf að vera í kæli helst yfir nótt, kakó er sigtað yfir áður en borið er fram.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/489/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










