Hagkaup
|
mbl
|
19. maí
Rauðvínssteiktar fasanabringur
- Hráefni
- » 4 fasanabringur
- » 2 dl rauðvín
- » 2 dl kjötseyði
- » smjör, salt og pipar
- » Kryddblanda
- » 2 msk. olía
- » 1 tsk. ferskur timian
- » 1 tsk. fersk salvia
- » 1 hvítlaukur
- » salt
Fyrir 4
Aðferð
Blandið olíu með kryddinu og penslið fasanabringurnar með kryddblöndunni. Látið standa í hálfa klukkustund. Steikið fasanabringurnar við háan hita í eina mínútu á hvorri hlið, lækkið hitann og steikið í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Haldið heitu. Hellið rauðvíninu á pönnuna og sjóðið niður, bætið síðan kjötseyði útí. Látið sjóða nokkrar mínútur og smakkið til með salti og pipar Gott að bera fram með kartöflubátum og rauðkálssalati.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/492/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










