Hagkaup
|
mbl
|
19. maí
Heilsteiktar nautalundir með kremuðum blönduðum sveppum og grískum kartöflum
- Hráefni
- » 700-800 g nautalundir (sinahreinsaðar)
- » salt og pipar
- » 2 msk. smjör
- » 1 stk. hvítlauksgeiri (kraminn)
Fyrir 4
Aðferð
Steikið nautalundina í smjörinu og hvítlauknum á heitri pönnu á öllum hliðum þannig að hún lokist alveg, þá er hún sett inní 200° heitan ofn í ca.15 mín. eða þar til að kjarnhitinn verði ca. 65° (medium) þá er lykilatriði að hún fái að standa úti á borði í lágmark 15 mín. áður en hún er skorin í sneiðar.Þessi uppskrift er notuð í Kremaðir blandaðir sveppir Grískar kartöflur,
Meðlæti
Kremaðir blandaðir sveppir
- Hráefni
- » 300 g blandaðir sveppir, skornir í grófa bita (t.d. flúða, portobello, shitaki, ostru)
- » shallottlaukur (fínt saxaður)
- » 2 msk. olía
- » 1 dl nautasoð (eða einn teningur leystur upp í vatni)
- » 3 dl rjómi
- » 1 msk. smjör
- » 1 tsk. dijonsinnep
- » 1 msk. söxuð steinselja
- » salt og pipar
Aðferð
Steikið sveppina og laukinn í olíunni á heitri pönnu þar til sveppirnir byrja að mýkjast, þá er restinni bætt út á pönnuna og látið sjóða í 2-3 mín. og smakkað til með salti og pipar. Ath. þetta verður líka sósan, þess vegna má þetta vera svolítið rennilegt.Grískar kartöflur
- Hráefni
- » 400 g kartöflur (skrældar, skornar í bita og soðnar)
- » 3 msk. saxaðar ólífur
- » 2 msk. fetaostur í kryddolíu
- » 3 msk. af olíunni af fetaostinum
- » 1 tsk. saxaður hvítlaukur
- » 1 msk. söxuð steinselja
- » salt og pipar
Aðferð
Öllu blandað saman og sett í eldfast mót. bakað í ofni í ca. 10 mín.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/495/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










