Grænmetislasagne m/ólífum, basil og parmesan osti

Hráefni
» 120 g blaðlaukur
» 100 g skalottlaukur
» 100 g hvítlaukur
» 60 g steinseljurót
» 150 g sellery rót
» 100 g gulrætur
» 150 g fennel
» 700 g ferskir tómatar
» 80 g basil
» 50 g steinselja
» 30 g timian
» 20 g engifer
» 20 g chilli
» 40 g koriander
» 150 g ólífuolía
» 400 g góð tómatsósa með hvítlauk og basil
» 2 dl rauðvín (má sleppa)
» 150 g sykur
» 150 g rauðvínsedik

Aðferð

Skrælið og skerið grænmetið niður í frekar litla bita og setjið í gegnum hakkavél eða í mixer þannig að þetta hreinlega líkist hakki. Mallið svo í ólífuolíunni í ca. 20 - 30 mín. Síðan er tómatsósan, vínið, sykurinn og saltið sett út í pottinn og látið malla þangað til allur safi er gufaður upp. Bætið þá út í góðum flottum ólífum, þær sem ykkur finnst bestar og magn eftir því hversu góðar ykkur finnst ólífur. Bragðbætið þá með salti, pipar og smá sítrónusafa. Smyrjið eldfast mót og setjið smá af grænmetinu í formið, ofan á koma lasagne plötur, þá béchamel sósa og svo 50/50 parmesan ostur og venjulegur brauðostur. Endurtakið þangað til hráefnið er búið. Lokið með góðu lagi af béchamel sósu og rifna ostinum. Bakið í ofni við 170 gráður. Berið fram með hvítlauksbrauði og góðu salati.

Þessi uppskrift er notuð í Béchamel sósa

Meðlæti

Béchamel sósa

Hráefni
» 500 g mjólk
» 2 lárviðarlauf
» 1 saxaður laukur
» 4 saxaðir hvítlaukar
» 2 greinar basil

Aðferð

Setjið allt í pott og náið upp suðunni. Hyljið þá með plastfilmu og látið standa í a.m.k. 30 mín. Bræðið saman 40 g af smjöri og 40 g af hveiti og leyfið að malla í 5 - 7 mín. Hrærið þá út í sigtaða mjólkina og látið hana malla í 4 mín. Smakkið til með salti, pipar, rifnu múskati og smá sítrónusafa.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar