Hagkaup
|
mbl
|
19. maí
Mangó sorbet á appelsínukexi
- Hráefni
- » 150 g sykur
- » 150 g vatn
- » 300 g mango (ca. 2 mango)
- » Safi úr 1 lime
- » Appelsínukex
- » 250 g sykur
- » 65 g hveiti
- » 100 g appelsínusafi
- » 100 g smjör (brætt)
- » Hindberjasósa
- » 150 g hindber
- » 2 msk. sykur
Aðferð
Sjóðið vatn og sykur í 5 mín, kælið, skrælið mangóin og skerið í sneiðar, setjið mangóin í matvinnsluvél og maukið, setjið limesafann og sykursýrópið útí og maukið. Sigtið í skál og frystið í 2 tíma, hrærið frystið í 30 mín. og hrærið á 30 mín. fresti nokkrum sinnum þangað hann þykknar. AppelsínukexH Setjið hveiti, sykur og appelsínusafi í skál og hrærið, bætið smjörinu útí, hrærið. Kælið deigið. Setjið deigið á bökunarplötu með skeið í lengjur og bakið við 180° (ekki blástur) í 12- 15 mín. Takið kexið af plötunni þegar það er orðið volgt og mótið ofan í glas. Hindberjasósa Sjóðið í potti og sigtið.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/498/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










