Hagkaup
|
mbl
|
19. maí
Grænt spínatsalat og hnetusósa
- Hráefni
- » 75 g ferskt spínat frá Fresh Quality (ca. 1/2 poki)
- » 1/2 avocado, afhýtt og steinhreinsað og skorið í litla bita
- » 1 dl soðnar baunir, t.d. kjúklingabaunir eða smjörbaunir eða
- » 1 dl baunaspírur
- » 1/2 brokkolíhöfuð, skorið í blóm
- » 1/2 hvítur salatlaukur, skorinn í þunna strimla
- » 10 litlir grænir aspasstönglar, skornir í tvennt og mýktir á pönnu í 1-2 mín
- » grænar sykurbaunir, skornar í langsum strimla
- » nokkrar grænar ólífur
- » nokkur kapersber frá La Selva
Aðferð
Toppið salatið með ristuðum furuhnetum eða ristuðum graskersfræjum frá nægtabrunni náttúrunnar. Ef þið notið þurrkaðar baunir þá setjið þær í bleyti yfir nótt og skiptið um vatn og sjóðið þær gjarnan með smá stórþarastrimli - kombu - í ca. 1 klst. eða þar til hægt er að kremja þær milli fingra sér. Setjið brokkolíið út í sjóðandi vatn og teljið upp að 3 og takið það uppúr aftur, líka hægt að hafa það hrátt. Setjið allt í skál eða á fat og blandið saman.Þessi uppskrift er notuð í Hnetusósa
Meðlæti
Hnetusósa
- Hráefni
- » 2 dl hnetusmjör
- » 2 dl vatn
- » 3 msk. tamarisósa eða sojasósa
- » 4-5 döðlur - mjög smátt saxaðar
- » 3 hvítlauksrif, pressuð/smátt söxuð
- » 2-3 msk. sítrónusafi
- » 1/2 búnt ferskt kóríander
- » 1/4 tsk. cayenne pipar - meira ef þú vilt hafa sósuna sterkari
- » smá sjávarsalt
Aðferð
Setjið hnetusmjörið í matvinnsluvél og hellið vatninu útí og látið þetta blandast vel saman. Bætið restinni af uppskriftinni útí og látið blandast vel. Þessi sósa geymist í ísskáp með þéttu loki.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/499/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










