Hagkaup
|
mbl
|
3. júní
Grillaðar kartöflur – eins og í Svíþjóð
- Hráefni
- » Kartöflur
- » Sýrður rjómi
- » Blå Band Sauce Fraiche að eigin vali
- » Graslaukur eða kryddjurtir að eigin vali
Fyrir 1 - 2
Frumsamin uppskrift frá Sænska kokknum fyrir gjordusvovel.isÍ Svíþjóð eru flesti vitlausir í grillaðar kartöflur og hér kemur allavega ein einföld aðferð við að matreiða og bera þær fram.
Aðferð
Skerið kross efst í kartöfluna og látið hana standa á efri grillgrindini á meðan grillið er að hitna, ekki er þörf á olíu eða álpappír. Athugið kartöfluna eftir um 15 mínútur. Þegar krossinn er farinn að opnast athugið þá hvort þær eru fulleldaðar, (þær eiga að vera mjúkar eins og þroskaður brie ostur). Þegar þær eru tilbúnar takið af grillinu og haldið heitum. Þegar þær eru bornar fram opnið þá skurðinn og setjið ca 2 msk af einhverri af Sauce Fraiche sósunum frá Bla Band og dreifið smávegis af ferskum smátt skornum graslauk, eða einhverjum öðrum ferskum kryddjurtum yfir. Svo auðvelt er þetta.Með kveðju,
Sænski kokkurinn
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/508/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










